Skelrækt.is

Skelrækt

Velkominn á vef skelræktar

Félagsmenn athugið.  Til að skoða innri vefinn, smellið á Félagsmenn hér til vinstri og skráið ykkur inn.

Fréttir

Tveir stjórnarmenn Skelræktar í nefnd vegna landsskipulagsstefnu

Umhverfisráðherra lagði fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu til tólf ára. Ráðherra fól Skipulagsstofnun að vinna tillögur að landsskipulagsstefnu.

Tveir stjórnarmenn Skelræktar eru að vinna með Skipulagsstofnun í þessu skipulagi til að gæta hagsmuna félagsmanna. Það eru þeir Jón Páll Baldvinsson og Elías Oddsson


Lesa meira

Heimsókn til Vogaskeljar

Sigurþór og Þórður í Vogaskel hafa starfað síðan 2009 við tilraunir í ræktun kræklings. Settar voru tvær línur með lirfusöfnurum í sjó við Vogastapa fyrsta árið, aðrar tvær  línur 2010 og svo enn tvær línur 2011. Alls 6 línur.  Svæði Vogaskeljar er fyrir opnum sjó til norðurs og gengur mikil alda yfir svæðið í norðanveðrum.




Ný reglugerð um merkingar matvæla

Ný reglugerð Evrópusambandsins um merkingar matvæla (food information to consumers) var birt 22. nóvember s.l. Reglugerðin verður innleidd á Íslandi á næstu misserum og mun leysa af hólmi núverandi reglugerðir um merkingu matvæla og merkingu  næringargildis matvæla. Lesa meira

Vorleiðangri Hafrannsóknarstofnuninnar lokið

Árlegum vorleiðangri Hafrannsóknastofnunarinnar lauk 2.júní s.l. Farið var á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni. Leiðangurinn var liður í langtímavöktun á ástandi sjávar, næringarefnum, gróðri og átu á hafsvæðinu við Ísland. Athuganir voru gerðar á alls 100 rannsóknastöðvum umhverfis landið, bæði á landgrunninu og utan þess. 

Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf