Félagsmenn athugið. Til að skoða innri vefinn, smellið á Félagsmenn hér til vinstri og skráið ykkur inn.
Flýtilyklar
Velkominn á vef skelræktar
Fréttir
Aðalfundur Skelræktar 2012
mánudagur 20.febrúar 2012 - Lestrar 2
Aðalfundur Skelræktar 2012 verður haldinn á Seyðisfirði þann 24 mars.
Aðalfundur hefst kl 13:00. Tilkynnt verður um möguleika varðandi
gistingu og kvöldverð þegar nær dregur.
Kræklingavinnsla hafin á Drangsnesi
þriðjudagur 07.febrúar 2012 - Lestrar 10
Í dag hófst vinna á kræklingi hjá Drangi ehf. á Drangsnesi, en Strandaskel stendur að rekstrinum. Áætlað er að framleiðslan verði um 50 tonn í ár og hluti hennar kemur að öllum líkindum á innanlandsmarkað. Tíu manns vinna við kræklingavinnsluna. Lesa meira
Tveir stjórnarmenn Skelræktar í nefnd vegna landsskipulagsstefnu
mánudagur 16.janúar 2012 - Lestrar 9
Umhverfisráðherra lagði fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu til tólf ára. Ráðherra fól Skipulagsstofnun að vinna tillögur að landsskipulagsstefnu.
Tveir stjórnarmenn Skelræktar eru að vinna með Skipulagsstofnun í þessu skipulagi til að gæta hagsmuna félagsmanna. Það eru þeir Jón Páll Baldvinsson og Elías Oddsson
Lesa meira
Tveir stjórnarmenn Skelræktar eru að vinna með Skipulagsstofnun í þessu skipulagi til að gæta hagsmuna félagsmanna. Það eru þeir Jón Páll Baldvinsson og Elías Oddsson
Lesa meira
Heimsókn til Vogaskeljar
mánudagur 12.desember 2011 - Lestrar 29
Sigurþór og Þórður í Vogaskel hafa starfað síðan 2009 við tilraunir í ræktun
kræklings. Settar voru tvær línur með lirfusöfnurum í sjó við Vogastapa fyrsta
árið, aðrar tvær línur 2010 og svo enn tvær línur 2011. Alls 6
línur. Svæði Vogaskeljar er fyrir opnum sjó til norðurs og gengur mikil
alda yfir svæðið í norðanveðrum.


