Aðalfundur Skelræktar 2012 Kræklingavinnsla hafin á Drangsnesi Tveir stjórnarmenn Skelræktar í nefnd vegna landsskipulagsstefnu Heimsókn til Vogaskeljar
Aðalfundur Skelræktar 2012 verður haldinn á Seyðisfirði þann 24 mars.
Aðalfundur hefst kl 13:00. Tilkynnt verður um möguleika varðandi
gistingu og kvöldverð þegar nær dregur.
Í dag hófst vinna á kræklingi hjá Drangi ehf. á Drangsnesi, en Strandaskel stendur að rekstrinum. Áætlað er að framleiðslan verði um 50 tonn í ár og hluti hennar kemur að öllum líkindum á innanlandsmarkað. Tíu manns vinna við kræklingavinnsluna.Lesa meira
Umhverfisráðherra lagði fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu til tólf ára. Ráðherra fól Skipulagsstofnun að vinna tillögur að landsskipulagsstefnu.
Tveir stjórnarmenn Skelræktar eru að vinna með Skipulagsstofnun í þessu skipulagi til að gæta hagsmuna félagsmanna. Það eru þeir Jón Páll Baldvinsson og Elías Oddsson
Sigurþór og Þórður í Vogaskel hafa starfað síðan 2009 við tilraunir í ræktun
kræklings. Settar voru tvær línur með lirfusöfnurum í sjó við Vogastapa fyrsta
árið, aðrar tvær línur 2010 og svo enn tvær línur 2011. Alls 6
línur. Svæði Vogaskeljar er fyrir opnum sjó til norðurs og gengur mikil
alda yfir svæðið í norðanveðrum.
Ný reglugerð
Evrópusambandsins um merkingar matvæla (food information to consumers) var birt
22. nóvember s.l. Reglugerðin verður innleidd á Íslandi á næstu misserum og mun
leysa af hólmi núverandi reglugerðir um merkingu matvæla og merkingu
næringargildis matvæla.Lesa meira