mánudagur 24.desember 2007 - Lestrar 36
Aldrei hafa verið settar út jafn margar línur á einu ári og jafn víða. Á sama tíma er greinin komin á það stig að þekking er nú nægileg til að ekki telst lengur veruleg áhætta í að leggja í upphafskostnað vð útsetningu lína. Staðan kallar hinsvegar á enn frekari vinnu hjá einstökum fyrirtækjum og samtökum ræktenda varðandi tækniþekkingu í vinnslu og flutningum annarsvegar, og fjármögnun og markaðsmálum hinsvegar.
Sérstaklega er ánægjulegt hve Háskólinn á Akureyri og starfsfólk rannsóknastofnana á Akureyri hafa brugðist faglega við þróun skelræktar. Norðurskel í Eyjafirði hefur farið fremst i þróun greinarinnar og hefur Eyjafjörðurinn þannig verið suðupottur í þróun skelræktar undanfarin ár. Starfsfólk Hafró, Matís og Fiskistofu hafa einnig fylgst vel með og er t.d. kominn á legg grunnur að framtíðar vöktunarkerfi fyrir eiturþörunga í sjó og verið er að huga að mælingum á eitri í skelfiskholdi.
