föstudagur 03.júní 2011 - Lestrar 55
Þessi frétt birtist á bb.is fyrir skömmu
Eitrunin ekki ógn við kræklingarækt
Lömunareitrunin PSP greindist í kræklingi úr Steingrímsfirði og Eyjafirði fyrir stuttu og varar Matvælastofnun sterklega við því að tína kræklinga á svæðinu á meðan eitrunin varir. Útgerðin ST2 á Drangsnesi hefur á undanförnum árum staðið fyrir kræklingaeldi í Steingrímsfirði, en eitrunin hefur lítil áhrif á eldið í firðinum. „Þetta er þörungaeitrun sem kemur upp á hverju sumri og það er fylgst afar vel með því að enginn kræklingur fari frá okkur á meðan þetta stendur yfir. Við vitum ekki nákvæmlega hve lengi eitrunin varir en það getur verið í nokkra daga upp nokkrar vikur. Í gamla daga talaði fólk um að tína mætti krækling í mánuðum sem hafa R í nafninu en þetta er nú aðeins flóknara en það. Þetta er ung atvinnugrein og við erum enn að afla okkur þekkingar á árstíðarbundnum sveiflum í ræktuninni,“ segir Óskar Torfason, framkvæmdastjóri fiskvinnslunnar Drangs ehf. á Drangsnesi.Óskar segir kræklinginn ekki verða fyrir varanlegum skaða vegna eitrunarinnar. „Eitrunin er tilkominn vegna þörunga sem eru aðalfæða kræklingsins. Um leið og þessir eiturþörungar hverfa úr sjónum, þá jafnar skelin sig en eins og ég sagði þá vitum við ekki nákvæmlega hve langan tíma þetta tekur en þetta gengur hratt yfir,“ segir Óskar. Kræklingaræktun ST ehf. hefur staðið yfir í rúm þrjú ár og segir Óskar að hún hafi gengið mjög vel. „Núna í vor var fyrsta alvöru uppskeran hjá okkur. Og nú hafa um 30 tonn af kræklingi verið tekin upp úr sjó til útflutnings sem er mesta magn sem flutt hefur verið út af kræklingi frá Íslandi,“ segir Óskar og bætir við að enn séu 10 tonn í sjó sem bíði útflutnings. „Stefnan var að sækja þennan krækling núna í vikunni en vegna eitrunarinnar þá verður það að bíða.“
Óskar er bjartsýnn á framhald ræktunarinnar. „Ræktunin hefur gengið vonum framar og við höfum lært mikið á þessum tíma. Nú er að læra á markaðina og vinnsluna. Við erum komnir með vinnsluleyfi og stefnum að því að hefja framleiðslu næsta haust. Þetta er því kærkomin viðbót við atvinnulífið hér,“ segir Óskar.

