Aðalfundur SKELRÆKTAR, hagsmunasamtaka skelræktenda var haldinn 12. – 13. september sl. Aðalfundurinn endurspeglaði aukinn kraft og áhuga í greininni. Ljóst að enn fleiri fyrirtæki munu hasla sér völl á sviði skelræktar á næstu misserum.
Um
20 aðilar hafa unnið að uppbyggingu bláskeljaræktar um lengri eða
skemmri tíma. Þekking á líffræðilegum og tæknilegum þáttum fer
hraðvaxandi og hefur Norðurskel í Eyjafirði þegar hafið útflutning
Samtökin vinna náið með stjórnvöldum að endurbótum starfsreglna og undirbúningi að gjaldeyrisskapandi útflutningi.
Þróunarvinna frumkvöðla hefur leitt í ljós að íslenskar aðstæður henta mjög vel til ræktunar á bláskel. Gæðaþættir eins og holdfylling, bragðgæði og afhendingaröryggi sýna betri útkomu en hjá ræktunarfyrirtækjum í nágrannalöndunum. Einnig kom fram að vannýtt fjárfesting sem þegar hefur verið lögð í íslenskan sjávarútvegi eins og hafnargerð, vinnsluhús, flutningakerfi og þekking á markaði og sölu á sjávarfangi nýtist vel í skelrækt. Greinin er sérstaklega vel fallin til skapa ný störf á svæðum sem hafa átt á brattann að sækja í þróun fiskveiða og vinnslu síðustu árin.
Bláskeljarækt er eitt stærsta og nærtækasta nýsköpunartækifæri sem íslendingar eiga. Íslensk bláskeljaframleiðsla hefur aðgang að um 350.000 tonna markað í mið- og norður Evrópu. Þessi markaður hefur ekki verið mettur um margra ára skeið og getur tekið við bláskel að verðmæti 17 milljarða króna á ári til viðbótar við núverandi neyslu.
Aðalfundur ályktaði einnig um tillögur til stjórnvalda um sambærilegan aðgang að rannsókna- og þróunarsjóðum auk nýsköpunarsjóða til jafns við aðrar greinar.
Stjórn SKELRÆKTAR:
Bergsveinn Reynisson, Nesskel ehf – formaður
Einar Birgir Kristjánsson, Skeljaberg ehf - gjaldkeri
Jón Páll Baldvinsson, Breið ehf - ritari
Elías Oddsson, Vesturskel ehf
Viðir Björnsson, Norðurskel ehf
Varamenn:
Bjarni Einarsson, Nýskel ehf
Stefán Stefánsson, Bakkabretti ehf
Jón Örn Pálsson, Íslenskur Skelfiskur ehf

