Skelrækt.is

Fréttatilkynning Aðalfundur SKELRÆKTAR, hagsmunasamtaka skelræktenda var haldinn  á Ísafirði 12-13. mars s.l. Aðalfundur samtakanna endurspeglaði

Fréttatilkynning

Aðalfundur SKELRÆKTAR, hagsmunasamtaka skelræktenda var haldinn  á Ísafirði 12-13. mars s.l. Aðalfundur samtakanna endurspeglaði aukin kraft og áhuga í greininni. Ljóst að enn fleiri fyrirtæki munu hasla sér völl á sviði skelræktar á næstu misserum.

Um 20 aðilar hafa unnið að uppbyggingu bláskeljaræktar um lengri eða skemmri tíma. Þekking á líffræðilegum og tæknilegum þáttum fer hraðvaxandi og hefur Norðurskel í Eyjafirði þegar hafið útflutning.

Samtökin vinna náið með stjórnvöldum að endurbótum starfsreglna og undirbúningi að gjaldeyrisskapandi útflutningi.

Þróunarvinna frumkvöðla hefur leitt í ljós að íslenskar aðstæður henta mjög vel til ræktunar á bláskel. Gæðaþættir eins og holdfylling, bragðgæði og afhendingaröryggi sýna betri útkomu en hjá ræktunarfyrirtækjum í nágrannalöndunum. Einnig kom fram að vannýtt fjárfesting sem þegar hefur verið lögð í íslenskan sjávarútvegi eins og hafnargerð, vinnsluhús, flutningakerfi og þekking á markaði og sölu á sjávarfangi nýtist vel í skelrækt.  Greinin er sérstaklega vel fallin til skapa ný störf á svæðum sem hafa átt á brattann að sækja í þróun fiskveiða og vinnslu síðustu árin.

Bláskeljarækt er eitt stærsta og nærtækasta nýsköpunartækifæri sem íslendingar eiga. Íslensk bláskeljaframleiðsla hefur aðgang að um 350.000 tonna markað í mið- og norður Evrópu. Þessi markaður hefur ekki verið mettur um margra ára skeið og getur tekið við bláskel að verðmæti 17 milljarða króna á ári til viðbótar við núverandi neyslu.

Aðalfundur sendi einnig áskorun til Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra vegna rannsókna og þróunarstarfa í kræklingarækt 

Stjórn SKELRÆKTAR:

Bergsveinn Reynisson, Nesskel ehf – formaður
Einar Birgir Kristjánsson, Skeljaberg ehf 
Jón Páll Baldvinsson, Breið ehf 
Elías Oddsson, Vesturskel ehf 
Bjarni Einarsson, Nýskel ehf

Varamenn:
Jón Örn Pálsson, Íslenskur Skelfiskur ehf

Sigurþór Stefánsson, Vogaskel ehf



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf