Sjósetning bátsins markar tímamót í þróun skelræktar við Ísland þar sem
Norðurskel hefur hingað til notað bát sem var þyngri í rekstri og ekki
hannaður fyrir skelrækt. Norðurskel hefur fjárfest í nýjum tækjabúnaði
að undanförnu og var m.a. sjósettur minni bátur nýlega frá sama
framleiðanda. Einnig hefur fyrirtækið fengið til landsins afkastamiklar
vinnsluvélar sem verið er að setja upp í vinnslusal Norðurskeljar í
Hrísey.