Skelrækt.is

Tveir stjórnarmenn Skelræktar í nefnd vegna landsskipulagsstefnu Umhverfisráðherra lagði fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu

Tveir stjórnarmenn Skelræktar í nefnd vegna landsskipulagsstefnu

Umhverfisráðherra lagði fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu til tólf ára. Ráðherra fól Skipulagsstofnun að vinna tillögur að landsskipulagsstefnu.

Tveir stjórnarmenn Skelræktar eru að vinna með Skipulagsstofnun í þessu skipulagi til að gæta hagsmuna félagsmanna. Það eru þeir Jón Páll Baldvinsson og Elías Oddsson


Í landsskipulagsstefnu eru samþættar áætlanir opinberra aðila um samgöngur, byggðamál, náttúruvernd, orkunýtingu og aðra málaflokka sem varða landnotkun og er hún útfærð með tilliti til skipulags landnotkunar með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Eftir því sem við á skal hafa svæðis- og aðalskipulagsáætlanir til hliðsjónar.
Skipulagsstofnun skal hafa aðgang að áætlunum annarra opinberra aðila í einstökum málaflokkum sem varða landnotkun.
Þegar vinna að gerð landsskipulagsstefnu hefst tekur Skipulagsstofnun saman lýsingu á verkefninu þar sem gerð er grein fyrir þeim áherslum sem fyrirhugað er að hafa við gerð landsskipulagsstefnu, svo sem forsendum stefnunnar, viðfangsefni og fyrirhugaðri kynningu og samráði við mótun stefnunnar.

Við gerð landsskipulagsstefnu skal Skipulagsstofnun hafa samráð við sveitarfélög, þær stofnanir sem fara með þá málaflokka sem landsskipulagsstefnuna varða, Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök eftir því sem við á.

Landsskipulagsstefna getur tekið til landsins alls, einstakra landshluta og efnahagslögsögunnar. Í henni skal ávallt vera uppfærð stefna um skipulagsmál á miðhálendi Íslands
Sveitarfélög skulu taka mið af landsskipulagsstefnu við gerð skipulagsáætlana og breytinga á þeim, og eftir því sem við á, samræma þær landsskipulagsstefnu innan fjögurra ára frá samþykkt hennar.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf