Verkefnið var afar gagnlegt og ómetanlegt hvað varðar grunnrannsóknir á skelrækt við strendur landsins og upplýsingamiðlun til frumkvöðla. Eftirfarandi kynning kemur fram á vef sem settur var upp fyrir verkefnið:
|
Alþingi samþykkt þann 10. mars 1999 þingsályktun um stuðning ríkisvaldsins við kræklingarækt og annan fjörubúskap. Í þingsályktinni kemur fram: “Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa, með lagasetningu ef með þarf, kræklingaeldi og hvers konar annan fjörubúskap sem ætla má að verði á næstu árum tekinn upp á lögbýlum sem aðgang eiga að sjó og að sjá til þess að á viðeigandi rannsóknastofnun verði sú sérfræðiþekking fyrir hendi sem að haldi má koma og þarf til þess að leiðbeina væntanlegum ræktendum skelfisks og hafa fullnægjandi eftirlit með framleiðslu þeirra í samræmi við kröfur einstakra markaða”. |
|
|
|
Kræklingaverkefnið hófst í byrjun ársins 2000 með upplýsingaöflun. Um sumarið 2000 voru fengnir til landsins sérfræðingar á vegum Atlantic Veterinary College, University of Prince Edward Island í Kanada til að leiðbeina íslenskum kræklingaræktendum. Kræklingaverkefnið er á vegum Veiðimálastofnunar og er fjármagnað með árlegu framlagi úr ríkissjóð, en einnig hefur Framleiðnisjóður styrkt verkefnið. Skeldýrasérfræðingur á Hafrannsóknastofnun hefur unnið að rannsóknum á líffræði ræktaðs kræklings. Markmið með kræklingaverkefninu er að:
|

