Skelrækt.is

Skelrækt

Velkominn á vef skelræktar

Félagsmenn athugið.  Til að skoða innri vefinn, smellið á Félagsmenn hér til vinstri og skráið ykkur inn.

Fréttir

Aðalfundur Skelræktar 2012

Aðalfundur Skelræktar 2012 verður haldinn á Seyðisfirði þann 24 mars. Aðalfundur hefst kl 13:00. Tilkynnt verður um möguleika varðandi gistingu og kvöldverð þegar nær dregur.

Kræklingavinnsla hafin á Drangsnesi

Í dag hófst vinna á kræklingi hjá Drangi ehf. á Drangsnesi, en Strandaskel stendur að rekstrinum. Áætlað er að framleiðslan verði um 50 tonn í ár og hluti hennar kemur að öllum líkindum á innanlandsmarkað. Tíu manns vinna við kræklingavinnsluna. Lesa meira

Tveir stjórnarmenn Skelræktar í nefnd vegna landsskipulagsstefnu

Umhverfisráðherra lagði fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu til tólf ára. Ráðherra fól Skipulagsstofnun að vinna tillögur að landsskipulagsstefnu.

Tveir stjórnarmenn Skelræktar eru að vinna með Skipulagsstofnun í þessu skipulagi til að gæta hagsmuna félagsmanna. Það eru þeir Jón Páll Baldvinsson og Elías Oddsson


Lesa meira

Heimsókn til Vogaskeljar

Sigurþór og Þórður í Vogaskel hafa starfað síðan 2009 við tilraunir í ræktun kræklings. Settar voru tvær línur með lirfusöfnurum í sjó við Vogastapa fyrsta árið, aðrar tvær  línur 2010 og svo enn tvær línur 2011. Alls 6 línur.  Svæði Vogaskeljar er fyrir opnum sjó til norðurs og gengur mikil alda yfir svæðið í norðanveðrum.




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf